- Aldur: Frá um 3 ára aldri og upp að 12 ára aldri
- Hæð barns: 100–150 cm
- Hámarksþyngd barns: 50 kg
- Öryggisstaðall: UN R129/04
FULLKOMIN LAUSN FYRIR ÖRYGGI OG ÞÆGINDI
ALLT AÐ 7 SINNUM MEIRA ÖRYGGI FYRIR HÖFUÐIй
25% MEIRI VÖRN VIÐ HLIÐARÁREKSTUR²
Línulegt hliðarvarnarkerfi (L.S.P.)
VEX MEÐ BARNINU AÐ HÆÐ OG BREIDD ALLT AÐ 12 ÁRA ALDRI
12 hæðarstillingar með sjálfvirkri breiddarstillingu
Börn stækka mikið á aldrinum þriggja til tólf ára. Solution S tryggir að barnið sitji þægilega allan þann tíma með 12 hæðarstillingum sem aðlagast vexti þess.
Hægt er að hækka höfuðpúðann með annarri hendi og breidd bílstólsins eykst sjálfkrafa um leið. Þannig er fljótlegt og einfalt að stilla bílstólinn að þörfum barnsins eftir því sem það stækkar.
FULLKOMIN SÓLARVÖRN
Innbyggt sólskyggni
Innbyggt XXL sólskyggni með UPF50+ sólarvörn³, sem er eingöngu í boði í Style-útfærslum, ver viðkvæma húð barnsins fyrir sólinni og dregur úr glampa svo barnið geti notið rólegra og öruggari lúra. Loftgóður gluggi stuðlar jafnframt að auknu loftflæði og hjálpar til við að halda barninu svölu.
FULLKOMIN ÞÆGINDI OG STUÐNINGUR Í LÚRNUM
Hallastilling
Stilltu hallann á bakstoðinni til að finna þægilegustu stöðuna fyrir hvíld eða svefn. Það er einfalt að laga hallann með því að stilla ISOFIX-festingarnar. Þannig verða bílferðirnar notalegri fyrir barnið og afslappaðri fyrir foreldrana.
LÚXUS HÖNNUN FYRIR ÞIG OG BARNIÐ ÞITT
Glæsilegir fletir með leðuráferð og loftgott mesh-efni
Hönnun Platinum Style-línunnar sækir innblástur í glæsilegustu lúxusbíla. Tvílitir fletir með leðuráferð falla fallega saman við loftgott mesh-efni og skapa fágað og tímalaust útlit. Útkoman er glæsileg hönnun fyrir þig og einstaklega þægileg upplifun fyrir barnið.
Eingöngu í boði í Style-útfærslum.
GÓÐ ÖNDUN OG LOFTRÆSTING
Loftræsting allan hringinn og rakastýring
Eingöngu í boði í Style-útfærslum.
EINFÖLD UPPSETNING OG AUKINN STÖÐUGLEIKI
MJÚKT VIÐ HÚÐINA – ÖRYGGI Í HVERJU SMÁATRIÐI
Prófanir sem ganga lengra en kröfur reglugerða
TILBÚINN Í FLUGIÐ
Samþykktur til notkunar í flugvélum
² Samanborið við sama bílstól án L.S.P.-hliðarvarnar, miðað við innri prófanir.
³ Athugið: Möskvaglugginn veitir ekki UPF50+ sólarvörn.
⁴ Flugvélabúnaður fyrir Solution S er ekki fáanlegur eins og er, en væntanlegur síðar.
Fyrir frekari upplýsingar bendum við á verslun okkar í Bæjarlind 6. Okkur er einnig að finna í tölvupósti ninekids@ninekids.is eða í síma 77 55 999 á opnunartíma verslunar.
Þar sem um öryggisvöru er að ræða er hvorki hægt að skila eða skipta bílstólum eftir að þeir eru farnir úr verslun okkar. Ekki er mælt með því að öryggisvörur séu sendar með Dropp eða sambærilegum flutningsaðilum, slíkt er alltaf á ábyrgð þess sem kaupir vöruna.





















