Leita
Karfa

CYBEX

Cybex Anoris T2 i-size

Verð
142.000 kr
Verð
Útsöluverð
142.000 kr - -142.000 kr (%)
VSK innifalinn
Litir og áklæði
Fara í körfunna
Fara í körfunna


Þín besta ákvörðun fyrir restina af lífinu þeirra.


Fyrir börn frá amk 15 mánaða til allt að 7 ára
Hámarks þyngd barns 21 kg
Framvísandi bílstóll fyrir börn frá 76 - 125 cm


Anoris T2 i-Size er hátæknilegur bílstóll í flokki framvísandi bílstóla fyrir börn. Hann er búinn loftpúða, sem er staðsettur í öryggisskyldinum.

Ferðalög framvísandi veita meira pláss fyrir fætur, auk þess sem auðvelt er að eiga samskipti og halda augnsambandi við barnið með spegli bílsins. 

Eftir Cloud T i-Size er Anoris T2 i-Size fullkominn arftaki þar til barnið þitt nær 7 ára aldri.

Anoris T2 i-Size, arftaki ADAC sigurvegarans Anoris T, býður upp á 50% meira öryggi¹ en aðrir framvísandi bílstólar og gerir foreldrum einnig kleift að halda mikilvægu augnsambandi við barnið á ferðinni.




Allt að 50% meira öryggi


Anoris T2 i-Size
er leiðandi í heiminum í bílstólstækni og er búinn loftpúða fyrir allan líkama barnsins, innbyggðum í öryggisskyldinum. Við framaná-árekstur þenst C-laga loftpúðinn út til að vernda höfuð, háls og líkama barnsins á millisekúndum – hraðar en augnblikið.

Þetta skilar allt að 50% meira öryggi en hjá öðrum framvísandi bílstólum¹.
Sem nýjasti sigurvegari í ADAC prófinu er hann bílastóll framtíðarinnar.

Beint augnsamband


Sjáið heiminn saman án þess að fórna öryggi. Margir foreldrar kjósa að hafa barnið framvísandi², því það gerir þeim kleift að halda ugnsambandi við barnið í spegli bílsins. Hver dýrmæt stund stuðar að þroska barnsins og styrkir tengsl foreldris og barns.



Frelsi til að hreyfa sig

Þéttur og mjúkur öryggisskjöldurinn veitir barninu nægt pláss til að hreyfa sig frjálst. Að sitja fram á við gefur einnig auka pláss fyrir fætur, svo barnið geti teygt sig á löngum ferðalögum. Rannsóknir okkar sýna að flestu börnum finnst öryggisskjöldurinn miklu þægilegri en öryggisbelti.

Ef það kemur til árekstrar er innbyggði loftpúði tilbúinn til að vernda barnið örugglega í sætinu.


ENN FLEIRI KOSTIR ÞESS AÐ VELJA ANORIS T2

Auðvelt að festa barnið


Að setja barn í bílstól hefur aldrei verið auðveldara, þökk sé nýstárlegri, einnar smellu öryggisskyldinum. Rannsóknir sýna að öryggisskjöldur er mun líklegri til að vera rétt fest en öryggisbelti².

Anoris T2 i-Size Plus öryggisskjöldurinn hefur átta stillingar til að tryggja það að barnið er örugglega fast í bílstólinn. Barnið helst öruggt en samt frjálst til að hreyfa sig, án þess að þyngd öryggisskjaldarins þrýsti á það.

Allt að sex sinnum meiri öndun

Hver ferð er mun þægilegri þökk sé eintaklega góðu loftflæði og nýstárlegu mesh efni sem andar allt að sex sinnum meira en sambærileg efni. Vel staðsett loftunargöt leyfa lofti ekki aðeins að streyma um sætið heldur fara einnig út úr sætinu, og flytja þannig varma frá barninu.

Langur notkunartími


Öryggi sem endist lengur. Rúmgott sætið veitir barninu pláss til að stækka til allt að 7 ára aldursþrjú ár lengur en sambærilegir bílstólar. Öryggisskjöldurinn og höfuðpúðinn eru fullstillanlegir til að tryggja fullkomin þægingi fyrir börn á öllum aldri.

Lengri notkunartími þýðir að barnið nýtur betri verndar í lengri tíma. Innbyggði loftpúðinn er hannaður til að vernda ólíka líkamsstærðir, sem tryggir einstaklega örugga notkun yfir árin.


Minnkar hliðarhöggkraft um 20%


Rúmlega 25% umferðarslysa eru hliðarárekstrar³. Háþróuð Linear Side-impact vörn dregur úr krafti hliðarhöggs um allt að 20%, með því að beina kraftinum inn í orkudreifandi hjúp bílstólsins.

Varnarvængirnir opnast sjálfkrafa þegar þú tekur bílstólinn úr kassanum – einn áhyggjulaus þáttur við uppsetningu bílstólsins.


Innbyggður öryggisaðstoðarmaður

Bílstóll verndar aðeins ef hann er rétt uppsettur.
Innbyggði öryggisaðstoðarmaðurinn hjálpar þér að setja stólinn rétt upp og tryggja að barnið sé öruggt í hverri ferð.

LED vísar sýna stöðu ISOFIX tengingar, stoðfóts og öryggisskjaldar, svo þú vitir alltaf að stóllinn sé rétt festur.


Fullkomin svefnstaða



Hallaðu sætinu aftur svo barnið þitt geti notið svefns á ferðinni. Þrjár hallastillingar gerir það auðvelt að finna fullkomna hvíldarstöðu

Örugg og einföld uppsetning

Með ISOFIX tengingu og stoðfót er traust festing tryggð milli Anoris T2 i-Size Plus og bílsins. Uppsetningin er auðveld og innbyggði öryggisskjárinn hjálpar þér að athuga að stóllinn sé rétt settur upp og tilbúinn að veita vernd.

Hámarks sólarvörn


Færanlegur sólskermur með UPF50+, sem er hluti af Plus línunni, veitir framúrskarandi vernd gegn sólarljósi og skýlir barninu þínu einnig frá annasömu umhverfi. Mesh gluggi eykur loftflæðið og heldur barninu fersku á ferðinni (mesh gluggi er ekki UPF50+).

 

Fyrir frekari upplýsingar bendum við á verslun okkar í Bæjarlind 6. Okkur er einnig að finna í tölvupósti ninekids@ninekids.is eða í síma 77 55 999 á opnunartíma verslunar.


Þar sem um öryggisvöru er að ræða er hvorki hægt að skila eða skipta bílstólum eftir að þeir eru farnir úr verslun okkar. Ekki er mælt með því að öryggisvörur séu sendar með Dropp eða sambærilegum flutningsaðilum, slíkt er alltaf á ábyrgð þess sem kaupir vöruna.

 

 

 

References:
¹ When compared to a forward-facing harness child seat in a frontal crash. Results of internal testing using 2021 ADAC frontal crash test criteria.
² According to studies such as: Müller G.; Kühn M.; Karakus B.; Bende J. 2019. “Misuse of Child restraint systems: Additional Aspects of the 2017 GDV Field Study.“ Gesamtverband der Deutschen Versicherungswirtschaft e. V., Forschungsbericht Nr. 55.
³ Lesire P. et al. Report on relevant children injury in road accidents of children models, Deliverable 2.1.1. of the CASPER project.