CYBEX Cloud G3 sameinar þægindi, öryggi og fjölhæfni.
Vottaður af AGR, *sjálfstæðum samtökum sem styðja við bakheilsu, og sérhönnuð flög legustaða hans styður við líkamsstöðu barnsins, bæði í og utan bíls.
Aldursbil: Frá fæðingu upp í um það bil 24 mánaða
Hæð barns: 40 – 87 cm
Þyngd barns: Hámark 13 kg
Uppfyllir reglugerð: UN R129/04
Auðveldara og fljótlegra er að setja barnið í eða taka það úr sætinu þökk sé 180° snúningsmöguleika og "eins-smells" losunarkerfi. Hægt er að halla bílstólnum í hálf-liggjandi stöðu bæði frístandandi og í base-i.
Loftflæði frá öllum hliðum með innbyggðu mesh-áklæði í Plus útgáfunni hjálpar til við að halda barninu svölu í hverri ferð. Til að auka öryggi veitir L.S.P. kerfið 15% meiri hliðarvörn (miðað við sama sæti án L.S.P. samkvæmt innri prófunum).
Bílstóllinn er einnig vottaður til notkunar í flugvélum, svo þú getur haldið barninu öruggu á ferðalögum fjölskyldunnar. Sem hluti af Modular G3 línunni passar Cloud G3 á sama base og Sirona G3 barnabílstóllinn, og styður þannig barnið þar til það verður um 4 ára gamalt.
Stóllinn er 4.0kg með ungbarnainnleggi og skermi.
Athugið að þessi bílstóll er fyrir börn frá 40cm og hentar því einstaklega fyrir litla fjölbura, létt- eða fyrirbura.






