Leita
Karfa

En Fant

Kuldagalli, tvírenndur - Pine Bark

Verð
18,990 kr
Verð
Útsöluverð
18,990 kr - -18,990 kr (%)
VSK innifalinn
STÆRÐIR
Fara í körfunna

Hlýr og fallegur En Fant snjógalli fyrir ungabörn, hannaður til að halda litlum krílum hlýjum, þurrum og notalegum í köldu og blautu vetrarveðri. Gallinn er með 20.000 mm vatnsheldni og 5.000 g öndun, sem gerir hann frábæran fyrir íslenskar vetraraðstæður.

Gallinn lokast með tveimur rennilásum að framan og tvöföldum vindlista sem veitir góða vörn gegn kulda og vindi. Hettuna er hægt að taka af og fallegar pífur yfir axlir og meðfram ermum að framan og aftan gefa gallanum sætt og skemmtilegt útlit.

Ermar eru með stillanlegum frönskum rennilásum og á stroffi er þumalgat sem hjálpar til við að halda kulda og bleytu frá höndunum. Stillanlegar gúmmífestingar fyrir skó halda skálmunum vel á sínum stað og hægt er að setja þær undir skóna.

Gallinn er með BIONIC FINISH® ECO áferð sem hjálpar til við að verja efnið gegn vætu og óhreinindum.

Eiginleikar:

  • Vatnsheldni: 20.000 mm

  • Öndun: 5.000 g

  • Hægt að taka hettuna af

  • Tveir rennilásar að framan

  • Tvöfaldur vindlisti

  • Fallegar pífur yfir axlir og meðfram ermum

  • Stillanlegar ermar með frönskum rennilás

  • Stroff á ermum með þumalgati

  • Stillanlegar gúmmífestingar undir skó

  • BIONIC FINISH® ECO áferð

  • Framleidd úr 60% endurunnu efni

  • GRS-vottuð – CERES-0366

  • OEKO-TEX® STANDARD 100 – Cert. No. 2476-411R DTI