Leita
Karfa

Difrax

Peli, Natural S-peli - Caramel

Verð
3.590 kr
Verð
Útsöluverð
3.590 kr - -3.590 kr (%)
VSK innifalinn
Stærð
Fara í körfunna
Fara í körfunna

S-pelinn fyrir krílin og krakkana!

  • Pelinn sem hefur verið í uppáhaldi hjá börnum og foreldrum vegna hins einstaka „anti-colic“ loks og S-lögunar pelans . – Þessir eiginleikar pelans tryggja stöðugt og jafnt flæði vökvans. – Eiginleikarnir koma í veg fyrir tómarúmssog hjá barninu úr pelanum, sem aftur tryggir jafnt og stöðugt flæði vökvans og gerir barninu kleift að drekka án þess að innbyrgða umfram óþarfa loft. – Þannig draga hinir sérstöku eiginleikar úr líkunum á óþarfa magakrampa, ristilkrampa, hægðatregðu, ropa, bakflæði og uppköst af völdum umfram lofts.
  • Sérstök S-lögun pelans gefur eðlilega og náttúrulega brjóstagjafastellingu, bæði fyrir krílið og þann sem gefur því. Stuðlar að tengslamyndun við barnið ásamt því sem sá sem gefur getur verið í eðlilegri og afslappaðri líkamsstöðu.

  • Læknar hafa mælt með þeirri náttúrulegu bognu líkamsstöðu barnsins sem S-pelinn veitir.

  • S-pelann má gefa krílunum allt frá fæðingu, en hann hefur einnig sýnt og sannað ágæti sitt samhliða brjóstagjöf.

  • S-pelinn hentar jafnt nýburum sem og fyrirburum.

  • Botn pelans má skrúfa af, sem gerir þrif og áfyllingu á pelann einstaklega aðgengileg.

  • S-pelinn er hannaður í samvinnu við lækna og ljósmæður.

  • S-pelinn kemur með túttu í stærð small sem einkum hentar nýburum og fyrirburum. Þá er hægt að kaupa aukapelatúttur í stærðum medium og large. – Einstaklega mjúkt yfirborð túttanna, gefur gott grip fyrir krílið.

  • Difrax hefur þróað sérstakan pelahitara sem sérstaklega er hannaður fyrir S-pelann. Það tekur hitarann 3 mínútur að hita vökvann í ráðlagt hitastig, 37’C. * S-pelinn passar fullkomlega á Difrax Btob brjóstapumpuna.

  • Fyrir notkun er ráðlagt að ganga úr skugga um að pínulitla gatið fyrir miðju silkikonstykkisins sé opið með því að kreista stykkið nokkrum sinnum.

  • Mikilvægt er að framkvæma daglega athugun á pelatúttu, toga þéttingsfast í hana sjálfa og ganga úr skugga um að hún sé heil og óskemmd.

  • Það má setja S-pelann í örbylgjuofn og uppþvottavél.

  • Difrax vörurnar eru þróaðar í samvinnu við læknateymi sem m.a. samanstendur af barnalæknum, talmeinatæknum, tannlæknum, mjólkursérfræðingum og næringarráðgjöfum.

  • Allar Difrax vörurnar eru BPA fríar.