Sköpunarkassinn minn – Einhyrningar og álfar 🦄✨
Stígðu inn í töfraheim fullan af litum, glimmeri og sköpunargleði! Með Sköpunarkassanum Einhyrningar og álfar geta börnin skapað sinn eigin ævintýraheim þar sem töfrandi verur, regnbogar og skemmtilegar sögur verða að veruleika.
Í kassanum eru yfir 1.000 hlutir sem bjóða upp á endalausa möguleika til sköpunar. Börnin geta klippt, raðað, límt og blandað saman fjölbreyttum efnum og áferðum til að búa til sín eigin listaverk. Hvort sem það eru flögrandi álfar, glitrandi regnbogar eða tignarlegir einhyrningar fær hugmyndaflugið að njóta sín.
Með einföldum sniðmátum og hugmyndabók fá börnin innblástur og leiðbeiningar til að skapa sinn eigin töfraheim.
Föndrið eflir sköpunargleði, fínhreyfingar og skynjun og breytir skjálausri stund í notalega og skapandi upplifun.
Allt er snyrtilega pakkað í nettan og vandaðan kassa sem auðvelt er að taka með sér, hvort sem er í ferðalag eða til að eiga notalega föndurstund heima.
Hannað í Ástralíu – töfrandi viðbót í föndursafnið fyrir litla listamenn með stórt hugmyndaflug! 🌈
Innihald kassans:
-
Yfir 1.000 hlutir til sköpunar
-
Sterkur og handhægur geymslukassi með handfangi
-
13 sniðmát með garðaþema
-
Hugmyndabók með yfir 20 skemmtilegum föndurverkefnum
-
Sterk föndurplata
-
Límstifti
-
Öryggisskæri fyrir börn
-
Litaður föndurpappír
-
Föndurpinnar
-
Bylgjupappírsform
-
Lítil frauðform með lími
-
Pappírsrör
-
Frauðform með lími
-
Pappírsform (Patty cases)
-
Límandi hreyfanleg augu
-
Ferningar úr þunnum silkipappír
-
Lituð frauðform með lími
-
Ferningar úr kreppappír






