Fallegir En Fant vettlingar, fullkomnir fyrir litlar hendur á köldum og blautum dögum. Vettlingarnir eru vatns- og óhreinindafráhrindandi og með 8.000 mm vatnsheldni, sem hjálpar til við að halda höndunum þurrum í útiveru.
Rifflað stroff við úlnlið passar uppá að þeir haldist vel á barninu og styrking í lófa eykur endingu vettlinganna og gerir þá vel í stakk búna fyrir leik og ævintýri.
Praktísk plastklemma tengir vettlingana saman svo auðvelt sé að geyma þá saman og minnka líkurnar á að þeir týnist.
Vettlingarnir eru með BIONIC FINISH® ECO áferð og eru að hluta til framleiddir úr endurunnu efni.
Eiginleikar:
- Vatns- og óhreinindafráhrindandi
- Vatnsheldni: 8.000 mm
- Fallegt all-over mynstur
- Rifjaðar stroff við úlnlið
- Styrking í lófa fyrir aukna endingu
- Plastklemma til að halda vettlingunum saman
- BIONIC FINISH® ECO áferð
- GRS-vottaðir – framleiddir úr 21% endurunnu efni
- GRS CERES-0366


